Helgin!
Jæja JAKAR, hvernig leggst helgin í okkur? Á að ger aeitthvað að viti, eða ætla menn að slá þessu upp í eitthvað kæruleysi?................................................heyrst hefur að Íþróttamálaráðherrann hefur boðað komu sína á Celtic Cross!
5 Comments:
Eftir dágóða 3 klukkutíma í að hnita út gróðurlög í loftmyndatúlkun og yndislegar stundir í arcmap. þá er ég farinn að hallast að því að ekkert geti bætt upp þann tíma nema áfengi, skál um helgina
Ég hef haft spurnir af því að sést hafi til vínmeistarans ráfandi drukkinn milli borða á stúdentakjallaranum í hádeginu. Ku hann hafa átt orðstaði. Vandinn var þó sá að enginn var á staðnum nema barstúlkan. Sel þetta þó ekki dýrara en ég keypti það.
Íþróttamálaráðherrann
Á Celtic Cross?? Þetta eru sláandi upplýsingar!! Svo bregðast krosstré sem önnur tré. Sökum gífurlegs álags í skólanum þá hef ég ákveðið að gera ekkert í málunum og slá kvöldinu upp í kæruleysi... er opinn fyrir öllu.
Áróðursmálaráðherra
Sammála áróðursmálaráðherranum. Bara að slá kvöldinu uppí kæruleysi. En sökum anna í skólanum geta bjórarnir ekki orðið fleiri en 14.
Íþróttamálaráðherra
Ég held að það sé bara málið, maður er hvort sem er í svo djúpum skít.
Skrifa ummæli
<< Home