fimmtudagur, desember 09, 2004

Faðir tveggja......

Sú litla lét heldur betur bíða eftir sér.......guði sé lof námsferðarinnar vegna! Fæddist 15 merkur og 53 cm með svartan lubba. Þetta var dágott púl, þetta hófst um 3 (15) á sunnudaginn og hún kom ekki í heiminn fyrr en kl. 23.44 á mánudagskvöldið! Öllum heilsast vel :-) Þá er bara að hefjast handa við að púsla saman sólahringnum með von um allt fari vel í þessum blessaða skóla!

.......erum við búin að fá einkunnina fyrir síðasta verkefnið í Borgalandfræði, þeir taka þetta til sín sem sitja í þeim kúrs?

Venlig hilsen,
KANSLARINN

4 Comments:

At 8:54 f.h., Blogger Hilmar said...

Til Hamingju með stúlkuna.
Ég bara veit ekki með einkunn í borgarlandfræði. ég missti reyndar af tímanum þegar hún afhenti prófið svo það gæti verið komið.

 
At 12:38 e.h., Blogger Asta said...

Til hamingju aftur!! Það væri gaman ef að þú gætir sett inn mynd af skvísunni einhver tíman eftir próf.
Mitt mottó á annríkum stundum ,,þetta reddast"!

 
At 1:35 e.h., Blogger Halldór Jón said...

Til hamingju aftur Nilli,Helga og auðvitað Elísa stóra systir með stelpuna.

kv
Halldór og Valgerður

 
At 5:06 e.h., Blogger Elías Már said...

Til hamingju fólkið á fjallinu (fellinu) með nýja fjölskyldumeðliminn.

Elías Már

 

Skrifa ummæli

<< Home