mánudagur, desember 06, 2004

Hvar er vínmeistarinn?

Vínmeistarinn kemur með yfirlýsingar um það að í HVERRI viku verði kynntur nýr bjór á síðunni sem hann er sjálfur með, en hvað gerist, það þarft alltaf að reka á eftir honum með þetta. Maður bíður spenntur eftir því hvað maður eigi að fá sér um helgina og svo gerist ekki neitt. Hvað er í gangi hjá vínmeistaranum? stendur hann undir nafni? það mætti halda að hann væri á kafi í verkefnavinnu og í Háskóla ofan á allt saman. Svo lofar hann því að þetta verði komið á miðvikudaginn en það getur verið of seint fyrir suma sem fara snemma í ríkið að versla fyrir helgina. Það verður að laga þetta ástand.

3 Comments:

At 11:21 e.h., Blogger Elías Már said...

Ég tilkynnti á síðunni minni í dag að nýr bjór kæmi ekki fyrr en á miðvikudag vegna Anna. Reynið bara að sætta ykkur við það að maður hefur eitthvað annað að gera. ARG.

 
At 11:43 e.h., Blogger Hilmar said...

hvaða Önnu, Önnu Dóru?

 
At 1:35 f.h., Blogger Elías Már said...

Nei, lenti í Anna (Annþóri) hann sagðist ekki vera sáttur, svo að ég eyddi tíma mínum í að róa hann.

 

Skrifa ummæli

<< Home