þriðjudagur, maí 17, 2005

Góða ferð!!!

Jæja JAKAR, er komin tilhlökkun í menn ? Og konur? Djöfull hefði maður verið gaman ef kallinn hefði getað komið með í þessa ferð! HA! Öfunda þá sem að munu sitja í þessari sveittu vindla/koníaksstofu, það er á hreinu að það hefði verið minn heimavöllur. En jæja ætla hætta þessu væli..... B.S.inn er svo gott sem kominn í höfn og ef einhverjum langar að hitta á mig þá verð ég vistaður á Kleppi fram yfir verslunarmannahelgi. Þetta var nú meiri geðveikin.....ráðlegg öllum þeim sem að ætla sér að klára í haust að byrja skrifa strax í júní.....ekkert korter í kjaftæði!

Jæja ætla að fara hætta þessu bulli og góða ferð....það verður nú svolgrað 2 baukum fyrir kallinn! Reynir þú sérð um það!
p.s. þeir sem að eru á leið til Russia þá bið ég að heils Vladimír!

Skal.....glugg glugg gluug glugg glugg

Kveðja,
Óðalsbóndinn aka KANSLARINN

5 Comments:

At 12:40 e.h., Blogger ReynirJ said...

Því skal ég nú lofa þér Níels að ég skal sötra tveimur krúsum fyrir þig og jafnvel nokkrum í viðbót. Við munum hugsa til þín þegar við verður á vindlastaðnum með Chivas Regal í vinstri og einn feitan kúbverskan í hægri.

 
At 1:04 e.h., Blogger Elías Már said...

Allir JAKAR munu drekka ÍslandsJÖKUM til heiðurs. Alla vegna ætla ég að sötra eitthvað fyrir Níels, eins og hann biður um og svæla smá.

 
At 1:34 e.h., Blogger Hilmar said...

Já ég skal skila kveðju til Vladimirs, svo skal ég líka drekka fyrir þig. Þú leggur bara inn á reikninginn minn það sem þú vilt að ég drekki fyrir ok.

 
At 3:35 e.h., Blogger Þórður Már said...

хорошее путешествие!! eða góða ferð!!

 
At 5:14 e.h., Blogger Inga seka said...

Ég læt ekki mitt eftir liggja í því að drekka til heiðurs Íslandsjökum...Skál

 

Skrifa ummæli

<< Home