föstudagur, mars 24, 2006

Allir í stuði!!!!!

Jæja Jakar, hvað er að frétta? það mætt halda að enginn væri með aðgang að tölvu, en svona er þetta bara. Þetta er búið að vera helv... dapurt undanfarið ekkert nýtt á þessari síðu síðan 5. mars. Ég held að það sé kominn tími til að skreppa í dagsferð eitthvert, kíkja í helli eða eitthvað sem ykkur dettur í hug bara í nágrenninu, það er nóg hægt að gera. Það virðist vera ómögulegt að skipuleggja ferð þannig að allir komist með, ef það á að gerast þarf það að vera með svona 6 mánaðar fyrirvara. Endilega látið heyra í ykkur og komið með einhverjar hugmyndir.

12 Comments:

At 6:38 e.h., Blogger Hilmar said...

Væri til í hellana við bláfjöll vantar bara gps á þá

 
At 7:45 e.h., Blogger Elías Már said...

Sammála Himma með hellana við Bláfjöll, en einnig er hægt að fara í Kaldársel og ganga á Helgafell og svo aðeins um Búrfellshraunið, þar eru nokkrir hellar. Lítið mál að radda GPS þar.

 
At 7:50 e.h., Blogger Elías Már said...

Átti að sjálfsögðu að vera redda ekki radda, þó ég geti alveg raddað GPS. En ég rakst á ansi skemmtilega lesningu um Kaldársel á síðunni ferlir.is.

Sjá hér, http://www.ferlir.is/?s=frodleikur&naid=329.

 
At 8:58 f.h., Blogger Valgerður Ósk said...

Ég er alveg til í einhverskonar útivist :)

 
At 6:06 e.h., Blogger Hilmar said...

Ég væri líka til að gera eitthvað innandyra

 
At 8:11 e.h., Blogger Þórður Már said...

Innflutningspartý hjá okkur e-n tíman í maí

 
At 11:18 f.h., Blogger Elías Már said...

Hverjir geta farið í dagsferð á laugardaginn 1. apríl? Er ekki málið að stefna á það og þeir sem komast ekki komast bara ekki og hinir mæta bara, er það ekki eina málið?

Það komast aldrei allir.

 
At 3:41 e.h., Blogger Asta said...

Ég kemst frekar þann 2.april sem er sunnudagur, en látið mig annars ekki stoppa ykkur ef 1.april hentar betur

Og Doddi hvert eru þið að fara að flytja??

Hvernig gengur liðinu annars með BS-inn

 
At 8:24 e.h., Blogger Elías Már said...

2. apríl er líka góður dagur, ég get einnig athugað með grill hjá mér eftir ferðina ef áhugi er fyrir því.

Bara að segja til og ákveða eitthvað.

 
At 11:35 f.h., Blogger Hilmar said...

Nei takk kæri Lewis hef ekki áhuga, en kannski einhver annar vill ekki svara fyrir alla Jaka. Það virðist eitthvað lítið ætla að verða úr helginni. ég er að fara í staffaparty á Lau svo ég kemst ekki í grill. Veit ekki með laugardaginn ætli hann fari ekki bara í afslöppun

 
At 6:29 e.h., Blogger Stebbi og Bílahornið said...

Ég er til í allt á morgun, t.d. fjallgöngu. Einnig gætum við (sem ætlum með) skroppið eitthvað stutt á Gúrkunni (Skjaldbreið?). Það væri bara spurning um að skjóta saman í bensín.
Þetta eru hugmyndir frá mér, en ég held að við verðum að ákveða þetta í kvöld svo hægt verði að taka daginn snemma. Annars verður ekkert úr þessu

 
At 11:11 f.h., Blogger Þórður Már said...

ég er því miður að vinna þessa helgina, eins og vanalega.

Doddi

 

Skrifa ummæli

<< Home