föstudagur, febrúar 09, 2007

Jakafyrirtæki - www.oskin.is - Auglýsing

Brúðarkjólaleigan Óskin sérhæfir sig í persónulegri og góðri þjónustu. Brúðarkjólaleigan Óskin hefur allt að bjóða sem brúðurin þarfnast. Óskin hefur gott úrval kjóla frá framleiðendum í fremstu röð. Brúðarkjólar frá Alfred Angelo og Ginnis eru meðal þeirra framleiðenda. Allar brúðir ættu að finni eitthvað við sitt hæfi. Óskin leggur metnað í að bjóða upp á sem flestar stærðir og má finna kjóla frá stærðum 8 – 32 (UK stærðir). Slör er er ómissandi við kjólinn og eru slörin vönduð og falleg. Skór frá Shades Shoes eru sérlega glæsilegir og vandaðir brúðarskór. Skart er nauðsynlegt til að fullkomna útlit brúðarinnar, gott úrval tiara, hálsmena, eyrnalokka og armbanda er að finna hjá Óskinni. Sokkar og sokkabönd eru ómissandi hluti af hverri brúði og er Óskin með gott úrval af sokkaböndum og sokkum. Heimasíða Brúðarkjólaleigunnar er www.oskin.is. Óskin er aðeins opin eftir pöntunum og er því nauðsynlegt að panta tíma í mátun. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið oskinmin@gmail.com eða hringja í síma 898-0692/555-3776. Einnig má senda sms í síma 898-0692. Mátunartímar eru alla virka daga frá kl. 17:00-20:00 og um helgar eftir samkomulagi.

4 Comments:

At 10:08 f.h., Blogger Hilmar said...

Eru Allir Jakar þá hluthafar?

 
At 2:41 e.h., Blogger Halldór Jón said...

Jakar eru þeir fyrstu sem geta tryggt sér hlutabréf á verði sem er undir gengi bréfa í þessu stórfyrirtæki. Þegar þetta fer á almennan markað verða þeir Jakar sem kaupa bréf ríki ef þeir selja sitt á almennum hlutabréfamarkaði. Jökum bíðst að kaupa hlut á genginu 4,2 en á almennum markaði verður hluturinn á genginu 17,8 þannig að það er mikið í húfi.

 
At 5:21 e.h., Blogger Hilmar said...

Ég ætla að fá einn hlut hefur alltaf dreymt um að eiga brúðarkjólaleigu.

 
At 6:25 e.h., Blogger Þórður Már said...

Við erum strax farin að agitera!!! Erum búin að láta eina vita sem ætlar að gifta sig í haust!!!

 

Skrifa ummæli

<< Home