sunnudagur, mars 02, 2008

Skarðsheiði 1. mars 2008


Laugardagsmorguninn 1. mars skelltu ég (Reynir) og Hilmar okkur í ferð upp á Skarðheiði í hreint út sagt frábæru veðri. Var lagt við bæinn Efra-Skarð og hafið göngu þaðan. Fyrir staðkunnuga þá er það mjög nálægt veitingastaðnum/gistiheimilinu Skessu-Brunnar. Stefnt var á tvo tinda, Skarðshyrnu og Heiðarhorn. Skarðshyrna er mest áberandi tindurinn sem er fremst (lengst til vinstri) séð frá Reykjavík og er eins og píramídi í laginu. Heiðarhorn er hins vegar hæsti hluti Skarðsheiðarinnar (rúmir 1050 metrar) og sést hann örlítið hægra megin við Skarðsheiði séð frá Reykjavík. Uppganga hófst um hálf 11 í frábæru veðri eins og myndirnar bera með sér og sóttist hún ágætlega. Í upphafi var fylgt Skarðsánni upp Skarðdalinn og farið yfir hana við Skarðsfoss. Þaðan var haldið á brattan og tekin bein lína á topp Skarðhyrnu. Þegar þangað var komið sáum við loksins Heiðarhornið og blés það líf í þreytta ferðalanga. Hryggurinn var genginn að Heiðarhorni og fóru tveir undanfarar þangað upp að kanna ísalög. Síðasti spölurinn sóttist frekar hægt en að endingu komust við á toppinn ásamt öðru leiðangursfólki.
Veðrið gat ekki verið betra og var algjört logn á toppnum. Þess vegna var staldrað þar við í dágóðan tíma og notið blíðunnar. Útsýni var frábært og fjöll sem að sáust í fjarska voru m.a. Keilir, Esja, Eyjafjallajökull, Botnsúlur, Skjaldbreiður, Hlöðufell, Langjökull, Baula, Ljósufjöll, Snæfellsjökull, ásamt fleirum.

Niðurferðin gekk hratt fyrir sig og komum við að lokum í bílanna. Þar var teygt á öllum helstu vöðvahópum. Síðan var lagt af stað í bæinn og vorum við komnir heim um hálf 7.
Óhægt er að segja að þessi ferð hafi tekist mjög vel. Veðrið gat ekki verið betra og færið var gott. Smá ísing á nokkrum stöðum ásamt hnédjúpum snjó á tímabili en ekkert til að kvarta yfir. Það er ekki oft sem að maður gengur á fjall sem er yfir 1000 metrar að vetri til. Að vanda þá stóð isostar orkudrykkur vel fyrir sínu og vorum við vel birgðir af orkusúkkulaði. Döðlurnar og sítrónurúsínurnar okkar fóru aðeins hægar niður. Þá er bara næsta ferð og er hún næsta miðvikudag á Esjuna. Göngugörpunum er strax farið að hlakka til og byrjaðir að telja niður.


Kveðja úr Vesturbænum árla sunnudagsmorguns,

Reynir og Lydía.

2 Comments:

At 1:54 e.h., Blogger Hilmar said...

Ég held án efa að þetta hafi verið eins kemmtilegasta fjallganga sem ég hef farið í á ævinni. En þó eru nokkrar framundan. Efast samt um að við fáum betra veður en í gær það var ólýsanlega gott

 
At 9:56 e.h., Blogger ReynirJ said...

Já, flott ferð í frábæru veðri...

 

Skrifa ummæli

<< Home