föstudagur, ágúst 31, 2007

Eiríkur 1 árs


í tilefni af því set ég þessa mynd inn sem ég er ótrúlega ánægð með, þrátt fyrir að Stebba finnist þetta ekki nógu merkilegur leikari. Hittum súkkulaðidrenginn Jared Leto í Köben á dögunum.

Annars erum við til í hitting á næstunni, helgin er reydar nokkuð þétt hjá okkur, en annars erum við bara nokkuð laus.

4 Comments:

At 9:44 f.h., Blogger Hilmar said...

Ég verð nú að vera sammála Stebba í þessu máli. Finnst merkilegra að eiga afmæli en að hitta Jared Leto hehe.
En Til hammili með ammilu

 
At 4:00 e.h., Blogger Halldór Jón said...

verð að viðurkenna að ég þurfti nú að fletta því upp hver þetta væri og í hverju þessi gaur hefði leikið, það er samt alltaf gaman að hitta frægt fólk. Hefði aldrei þekkt hann úti á götu.

 
At 8:15 e.h., Blogger Valgerður Ósk said...

Sko halló!
Horfðu þið aldrei á þættina á RÚV hérna í den sem hétu "My So-Called Life" en hann var einmitt með "snilldar" takta þar ásamt Claire Danes.
Einn af mínum uppáhaldsþáttum þegar ég var 12 ára :)

 
At 8:57 e.h., Blogger Asta said...

ég var mjög skotin í honum sem unglingur, var með myndir af honum upp á vegg hjá mér. það er nú ekki hægt að segja að hann sé ómyndarlegur.

 

Skrifa ummæli

<< Home