föstudagur, desember 17, 2004

Fór í prof í loftmyndatúlkun, svínslegt eins og vanalega, ég meina hvaða helvítis máli skiptir svertukúrfa fyrir mjúkar og harðar filmur og hliðrun í loftmyndum. Allavega hefur aldrei komið áður á prófi svo þetta var sögulegt próf. Ekki skemmdi fyrir að við höfum aldrei áður talað um það í tímum eða æfingatímum.
Skellti mér svo á Jakasíðuna og fékk þessa frábæru tölu á counternum, ég tel að Djöfullinn sjálfur hafi verið hér að verki.

Himmi

2 Comments:

At 7:39 e.h., Blogger Þórður Már said...

Þessi tiltekna spurning sem þú vísar til gilti 25%, eða 1/4 af prófinu. Það sem ég vil vita er...Hvar voru helv skilgreiningarnar!!!!!!!!!

 
At 9:41 e.h., Blogger Halldór Jón said...

Kennarinn (ónefndur) er algjört fífl. Það er staðreynd og ég þoli ekki þessa manneskju. Og þar hafið þið það. Hún kemur alltaf aftan að nemendum sínum og þannig á ekki að kenna fólki. Hún lítur líka geðveikt niður á alla sem ekki finnst gaman að gróðurflokkun. Svo gerir hún geðveikt mikið upp á milli nema. Hún á ekki að kenna nokkrum manni því hún kann það ekki. Hún væri best geymd í kofa í Krísuvík það sem eftir er með loftmyndunum sínum og Doktorsritgerðinni og jafnvel Britu :)

 

Skrifa ummæli

<< Home