föstudagur, janúar 20, 2006

Til hamingju með daginn!

Jæja mig langði bara að óska öllum bændum til hamingju með bóndadaginn;) Vonandi að þið hafið það sem allra best í dag.

Búningapartýið er á morgunn, JES!!! hlakkar geðveikt til en um leið og spenningurinn safnast upp í mallnum, er ekki laust við að maður finni örlítinn kjánahnút stækka líka:) Langt síðan maður hefur "dressað" sig svona upp;) held að ég hafi síðast verið draugur á öskudagsballi í barnaskólanum.
Ég held að maður fái sér nú nokkra sopa á meðan verið er að dressa sig upp, koma sér í gírinn (ekki það að maður geti ekki skemmt sér án áfengis, því ég get það alveg, en... æ þið skiljið).

Kjánakveðjur

1 Comments:

At 11:54 e.h., Blogger Hilmar said...

Takk fyrir það Valgerður, ertu viss um að þetta sé ekki eitthvað annað en hnútur í maganum?

 

Skrifa ummæli

<< Home