Hellaskoðun, Litli Björn-Vörðuhellir
Hellaskoðunar ævintýrið heldur áfram
Við félagarnir í Hellarannsóknarfélagi Jakana (The RedTeam eins og köllum okkur :)) skunduðum á Þingvöll og treystum vor heit í dag 13.okt, eftir margra mánaða ekki gera neitt tíma (allavega að minni hálfu).
Leiðinni var heitið í Litla björn og hann átti víst að tengjast vörðuhelli. Við félagarnir sannreyndum það og skriðum í gegnum þvílíku þrengslin og á tímabili var manni bara ekki alveg sama.
Svolítið óþægilegt að koma svona inn í einhvern annan helli eftir að hafa skriðið á maganum inní hann og ekki vita hvar í helvítinu maður er staddur. Ég verð nú að játa það ég hef aldrei verið eins fegin í hellaferðum og nú þegar við losins sáum dagsljósið. Lengd hellana samanlangt var eitthvað 800m, Reynir leiðréttir mig ef það er rangt. Man ekki alveg hvað þetta tók langan tíma en þegar það er gaman þá líður tíminn hratt.
Næst á döfinni hjá hellarannsónarfélaginum er að fjárfesta í alvöru ljósum og taka betri myndir.
jæja fleira verður í þættinum í kvöld
verið þið sæl
2 Comments:
Rosalega er þetta flottur galli sem að þú ert í Hilmar.
Sælir, og takk fyrir síðast. sömuleiðis þetta er Armani galli fékk hann í Mílanó á síðustu tísku vikunni
Skrifa ummæli
<< Home